| Hefur tjáð sig!!


fimmtudagur, maí 26, 2005 @ 18:44

Nemandi úr Viðskiptaháskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem
afgreiðslumaður í
Kaupfélagi úti á landi. Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt
var
að fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á
manninn
þótt hann væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu.
Hann sagði manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um
kvöldið og athuga hvernig hefði gengið. Kvöldið eftir spurði hann unga
manninn hvað hafði hann afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag.
"Bara einn," sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki
mikið en
spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið.
Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund" sagði
afgreiðslumaðurinn við
kaupfélagsstjórann.
"Hvað seldirðu honum eiginlega, rasaði kaufélagsstjórinn hissa? "
Jú, sjáðu til,"sagði drengurinn, "fyrst seldi ég honum lítinn öngul,
síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul,svo
veiðistöng
og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða.Hann sagðist ætla að
veiða ívatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum
plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti
aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í
véladeildina og
seldi honum nýjan Landróver. "
Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði:
"Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú selur honum
bæði bát og bíl."
"Nei, nei," sagði strákurinn. "Hann kom hingað til að kaupa dömubindi
handa
konunni sinni og ég sagði við hann að
fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir
hann
að fara að veiða!"

- svanurmg




Hit counter