Betra er að ganga fram af fólki en björgum. Betra er langlífi en harðlífi. Heima er best í hófi. Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er Betra er að standa á eigin fótum en annarra. Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst. Oft veldur lítill stóll þungum rassi. Oft er bankalán ólán í láni. Ekki dugar að drepast. Eitt sinn skal hver fæðast. Bændur eru bændum verstir og neytendum líka. Sjaldan fara sköllóttir í hár saman. Oft eru bílstjórar útkeyrðir. Flestar gleðikonur hafa í sig og á. Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga. Betra er að hlaupa í spik en kekki. Betri eru kynórar en tenórar. Betra er að sofa hjá en sitja hjá. Til þess eru vítin að skora úr þeim. Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum. Oft fara hommar á bak við menn. Oft eru dáin hjón lík. Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum. Betra er að fara á kostum en taugum. Margri nunnu er "ábótavant". Oft hrekkur bruggarinn í kút. Margur bridsspilarinn lætur slag standa. Oft eru bílstjórar vel á veg komnir. Oft fara bændur út um þúfur. Víða er þvottur brotinn. Oft fer presturinn út í aðra sálma. Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér.