Sunneva að taka feitt riff á ESP-in minn...ROKK ON
Ég var ekki ánægður með þáttinn hjá Jóni Ólafs núna á laugardaginn síðasta.... þá var hann semsagt að taka vesturlandið fyrir.... og það var ekkert sýnt brot af Allt Í Hönk....eða GOS/GOSH (hétu þið það ekki líka??)... hefði ekki verið kjörið að fá þá bræður KÁRA og SÍMON söngbræður úr einu sterkustu rokkböndum vesturlands í spjall og svo taka lagið með okkur Bigga... og ekki hefði það skemmt þáttinn ef Kiddi Rauði segði nokkrar sögur frá rokkinu í gamladaga með Suzi Quatro Hefði verið miklu betra en að sjá alla þessa Skagamenn...(nema Gauti hann er fínn...ertu ekki annas Skagamaður?).... Reyndar fékk maður að sjá þrjá Hólmara í þessu myndbroti...Njalli, Steini og Siggeir í Vinum Vors og Blóma...MAGNAÐ.
En í allt annað...fór að sjá myndina 300 Spartans...fýla svona myndir í botn...ég fór beint heim að smíða spjót og sverð og skjöldurinn minn er að verða tilbúinn...svo er bara að koma sér í svona form...geri það með því að dæla í mig sterum...lyfta svo einsog brjálæðingur...fæ mér svo rauða skikkju og dæli í mig kókaíni fer svo niður í bæ og hekk mann og annan....eða þangað til Sniper frá víkingasveitinni skýtur mig í hausinn